Monday, August 29, 2011

Ný önn

Nú er ný önn hafin.

Þið sem hafið áhuga á að vera með í nemendafélaginu, endilega óskið eftir aðgangi í hópinn okkar á facebook: Snápurinn. Hann má finna með því að smella hér.  

Þar skipuleggjum við viðburði á vegum félagsins og ræðum saman um allt milli himins og jarðar.

Eyrún

Tuesday, June 28, 2011

Þeir tilvonandi blaða- og fréttamennskunemar sem ákváðu að gúggla "nemendafélag blaða- og fréttamennsku" hafa ratað á réttan stað.

Þetta er síða nemendafélags blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Við erum einnig með hóp á facebook sem heitir Snápurinn og þar er velkomið að óska eftir inngöngu. Leitið og þér munið vonandi finna. Þið eruð velkomin!

Fyrir þá sem eru ekki nýir, þá var þessi síða í rauninni aldrei til. Hún mun hins vegar vera til í framtíðinni og meira að segja verða aktív þegar fer að hausta. Innihald hennar verður tilkynningar sem tengjast nemendafélaginu og náminu sjálfu, allskyns linkar og annað sem við þurfum á að halda og þurfum að vita. Ekki má gleyma myndum af lífinu í félaginu og ýmsu öðru gleðiefni. Skipulag (og nákvæm vinnubrögð), all the way.

Þessi tvö voru hress þegar þau voru í blaða- og fréttamennsku haustið 1977.

Snápurinn er einnig búinn að fá sér netfang í tilefni nýrra tíma, snapurinn[at]gmail.com
Sendið endilega eitthvað skemmtilegt.

Við hefjum árið með stæl í haust!

Fyrir hönd nemendafélagsins,
Eyrún.